Hengill, fjallabálkur úr móbergi, 803 m, geysimikill jarðhiti.
Eitt besta skíðalandið á Hengilssvæðinu er í Innstadal en þar er mikill jarðhiti og ölkelda.
Skeggi heitir þar sem hæst er nyrst og vestast á Hengli.
Vestan undir hlíðum Skeggja er Marardalur, allstór grasigróin slétta innilokuð af hamraveggjum og skriðum á alla vegu.
Syðst gengur þröngt gil vestur úr dalnum. Þar voru naut geymd fyrrum og dalnum þá lokað.