Árskógssandur

Árskógsströnd, frá Hill­um á Há­mund­ar­staða­hálsi, breitt und­ir­lendi vel gró­ið, þétt­býlt. Á Árskógsströnd standa þorpin Hauganes og Árskógssandur. Í hvoru um sig búa um 120 manns. Þar snýst lífið öðru fremur um fiskveiðar og matvæla framleiðslu. Á Árskógssandi er ferjuhöfn fyrir Hrís­eyjar­ferjuna Sævar sem flytur varning og fólk til og frá Hrísey „Perlu Eyja­fjarðar“. Þar er svo líka Bruggverksmiðjan Kaldi. Hægt að fara í kynningarferðir um smiðjuna. Frá Hauganesi er farið í hvalaskoðunarferðir um Eyjafjörð. Þar er einnig fyrirtækið Ektafiskur sem er löngu orðið landsþekkt fyrir framleiðslu sína á saltfiski. Fjöl­breytt þjónusta er við ferðafólk og geta flestir fundið sér eitthvað við hæfi.