Bláalónið

Bláa lónið, myndað af kísilauðugum jarðsjó sem er kældur niður í 70°C í orkuverinu í Svartsengi. Einstakt lífríki ásamt miklu magni af náttúrulegum steinefnum, kísil og sérstökum blágrænþörungi, sem mynda mjúkan hvítan leir í lóninu og gefa því sinn sérstaka bláa lit. Vatnið talið hafa lækningamátt við ýmsum húðsjúkdómum, einkum psoriasis.

Nýtt mannvirki tekið í notkun 1999. Bláa lónið fékk umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 1999 og var valið besta náttúrulega heilsulindin af lesendum breska ferðatímaritsins Condé Nast Traveller árið 2005. Hægt er að fara í fjallahjólaferðir undir leiðsögn á svæðinu.