Djúpivogur

Djúpivogur, þéttbýli við mynni Berufjarðar að sunnan.

Atvinnuvegir; sjósókn, fiskverkun, verslun og þjónusta. Verslun hófst á Djúpavogi á 16. öld. Þar er gamalt verslunarhús, Langabúð sem er talið vera frá 1790 og var reist af dönskum kaupmönnum. Í húsinu er sýning um líf og starf Ríkarðs Jónssonar (1888-1977) myndskera og myndhöggvara. Einnig er þar minningarstofa um Eystein Jónsson (1906-93) og konu hans Sólveigu Eyjólfsdóttur. Á lofti hússins má sjá ýmsa muni er tengjast sögu staðarins. Við hlið Löngubúðar er fuglasafn og handverkshús.

Djúpivogur og nágrenni er kjörið svæði til fuglaskoðunar, enda er fuglalíf fjölbreytt í hreppnum og við Fýluvog hefur verið sett upp fuglaskoðunarskýli. Skógrækt Djúpavogs er ein af perlum svæðisins.