Skaftáreldahraun eða Eldhraun, (hraunflæmi, 565 km2) hraunflóð sem rann úr Lakagígum árið 1783–4, talið hið mesta sem runnið hefur á jörðinni í einu gosi síðan sögur hófust. Eldgos þetta var kallað Skaftáreldar eða Síðueldur. Eyddust þá 22 bæir. Allmikil gjóska kom upp af hraunflóðinu og barst askan um mikinn hluta landsins og allt til meginlands Evrópu og einnig alla leið til austur Asíu. Meira en 9000 manns létust eða um 20% þjóðarinnar. Mikið hefur verið ritað um þetta hraun bæði af íslenskum og erlendum vísindamönnum.