Fóelluvötn

Sandskeið, allstór sandslétta, gamall vatnsbotn, nú grætt upp að nokkru. Aðalbækistöð og flugvöllur Svifflugfélags Íslands. Í lágu grjót­holti vestan Sandskeiðs eru rústir af gömlu sæluhúsi. Áður lá vegurinn um Sand­skeið, sunnan flugvallarins, en nú hefur hann verið færður norð­ar og liggur um Fóelluvötn. Í leysingum verður þarna allmikil uppi­staða vatns sem fær afrennsli niður um Fossvelli og Hólmsá. Í Foss­valla­klifi er steinn með ártalinu 1887 sem sýnir hvenær fyrsti akvegur á landinu var lagður.