Hafnarfjall

Hafnarfjall,, 844 m hátt, vestur undan Skarðsheiði, skriðurunnið og gróðurlaust. Ljósleit klettanef úr granófýri norðvestan í Hafnarfjalli heita Flyðrur, en oft nefnt Skessusæti.

Neðan undir Hafnarfjalli er Hafnarskógur sem talinn er einn af merkari birkiskógum landsins. Síðustu árin hefur verið unnið markvisst að endurheimt landgæða á Hafnarmelum.