Haukadalur, allmikill dalur og grösugur, gengur til austurs. Neðst í honum Haukadalsvatn, 4 km langt, silungsvatn, og allt að 40 m djúpt. Í því áttu að lifa sækýr og vera undirgöng til sjávar. Úr því fellur Haukadalsá, góð laxveiðiá, til sjávar. Skógur var fyrrum mikill í Haukadal en nú nær enginn.