Fnjóskadalur, um 40 km langur en fremur þröngur, austurhlíðar brattar og víða skriðurunnar en vesturhlíðar aflíðandi. Langir melhjallar með hlíðum, gamlar strandlínur frá ísöld þegar stöðuvatn var í endilöngum dalnum. Skógur víða. Fremur strjálbýlt en mikil uppbygging sumarhúsa á síðari árum. Fnjóskadalur klofnar fremst í þrjá dali: Bleiksmýrardal, Hjaltadal og Timburvalladal. Voru þeir áður byggðir en eru nú í eyði. Fnjóská allvatnsmikil, 117 km löng, fellur um dalinn sunnan af öræfum. Hún er lengsta bergvatnsá landsins og góð veiðiá.