Hreðavatn, bær norðan við samnefnt vatn í kvos undir fjallinu.
Í vatninu silungsveiði og hólmar með kjarri og fögrum gróðri. Umhverfi Hreðavatns fjölbreytilegt og litríkt.
Fyrir ofan og innan bæinn er surtarbrandur sem numinn var um skeið, þar eru einnig plöntusteingervingar frá hlýviðrisskeiðum tertíertíma.
Skammt vestur frá Hreðavatni er baululagaður móbergshnúkur, Vikrafell, 539 m, alláberandi neðan úr Borgarfirði séð.
Við Hreðavatn stendur Jafnaskarðsskógur.