Kvíahella

Húsafell, efsti bær í Borg­ar­firði, sunn­an Hvít­ár. Prests­set­ur fyrr­um og kirkju­stað­ur. Nú er þar kapella. Snorri Björns­son (1710–1803) gerði garð­inn fræg­an, rímna­skáld, þótti fjöl­kunn­ug­ur sem þjóð­sög­ur herma, krafta­mað­ur, reyndi afl sitt og ann­arra á Kvía­hellu sem enn er þar við tún, veg­ur 180 kg. Snorri er graf­inn að Húsa­felli og er leg­steinn hans þar. Jarð­hiti, mik­ill skóg­ur, ferða­þjón­usta og sund­laug. Vest­an við Húsa­fell hef­ur ver­ið graf­inn upp forn­ald­ar­bær og margt fund­ist þar minja. Páll Guðmundsson listamaður er fæddur og uppalinn á Húsafelli og þar er vinnustofa hans. Páll er landskunnur af list sinni og þekktur langt út fyrir landsteinana fyrir málverk sín og höggmyndir. Umhverfis vinnustofuna og víða um Húsafellsland má sjá verk Páls en nær allt grjót sem hann notar í höggmyndir sínar finnur hann á Húsafelli. Frá Húsa­felli ligg­ur vegur upp á Kalda­dal.