Látrabjarg, 14 km langt bjarg með mestu fuglabjörgum jarðar. Enn er sigið þar eftir eggjum en fuglatekja lagðist af árið 1926. Hæst er bjargið 441 m á Heiðnukinn. Austan við Heiðnukinn er Djúpidalur, Kyngjulönd og Geldingsskorardalur, en neðan hans er Flaugarnef. Við bjargið hafa orðið sjóslys. Af Flaugarnefi sigu björgunarmenn þegar breski togarinn Dhoon strandaði þar í desember 1947. Í desember 1997 reisti SVFÍ minnismerki við Látraheiðarveg í mynni Geldingsskorardalsskarðs um þennan atburð, sem talinn er eitt fræknasta björgunarafrek við Ísland. Frá minnismerkinu er aðeins um 10 mínútna gangur á bjargbrún þar sem horfa má yfir sögusviðið.
