Krafla, móbergsfjall 818 m, norður frá Námafjalli. Vestan í henni mikill jarðhiti, gufu- og leirhverir. Norðvestan í Kröflu er Víti, sprengigígur um 300 m í þvermál með grænu vatni í botni. Vestur af Kröflu er Leirhnjúkur en Hrafntinnuhryggur suðaustan við hana. Mannvirkjagerð vegna gufuvirkjunar hófst við Kröflu 1974 og var þá settur upp einn gufuhverfill sem skilaði 30 MW. Annar jafn stór hverfill var tekinn í notkun 1997. Jarðeldahrina varð í eldstöðvarkerfi Kröflu 1975-84. Urðu þar 9 smáeldgos í 7,5 km langri sprungu. Upptökin voru í Kröfluöskju, gamalli eldstöð.