Núpsvötn

Núpsvötn, vatnsmikil jökulá vestast á Skeiðarársandi og kemur jökuláin Súla saman við þau. Í Súlu koma hlaup úr Grænalóni. Áður flæmdust árnar víða um sandinn en við vegar– og brúagerð á honum var þeim veitt saman undir eina brú, 420 m langa. Oft er vel búnum torfærubílum fært inn að Eystrafjalli, í Núpsstaðarskóga, en vegna óvissu um leiðir og vatns­föll er sjálfsagt að kunnáttumenn séu með í för. Innst inni í Núps­vatna­­dal falla Núpsá og Hvítá saman í fögrum fossum, Núpsárfossi og Hvítár­fossi, niður í þröngt gljúfur og heita þá Núpsvötn. Fært er gangandi fólki upp með gljúfrinu að austan og er járnkeðja fest í bergið til hjálpar. Allmiklar skógar­torfur eru meðfram ánni, og fagrir hamraveggir að baki. Frá tjald­stæðum við Eystrafjall eru ágætar gönguleiðir upp á fjallið og þaðan austur á Súlu­tinda og inn að Grænalóni.