Saxa

Saxa, klettaskora við sjóinn skammt utan við Lönd. Saxa er sér­stakt náttúrufyrirbrigði, þar sem úthafs­saldan gengur inn í kletta­skoru og spýtist síðan hátt upp í loft í tilkomumiklum brimgosum.

Nafnið dregur Saxa af því að inni í henni saxast þönglar og þari í smátt sem þeytast upp með í brim­gosunum.