Skálholt, kirkjustaður og vígslubiskupssetur, áður biskupssetur 1056- 1796, og skólasetur frá siðaskiptum og oft í kaþólskum sið. Prentsmiðja var þar um nokkur ár og þar var unnið að fyrstu Nýja-testamentisþýðingu á Íslandi.
Margir örlagaríkir atburðir gerðust í Skálholti, svo sem aftaka Jóns Arasonar biskups og sona hans 1550. Minnismerki er þar um aftöku Jóns Arasonar.
Ýmis örnefni minna á forna sögu: Þorlákssæti, Fornistöðull, Virkishóll.Við veginn eru leifar Skólavörðu. Teitur Ketilbjarnarson gamla, faðir Gissurar hvíta, byggði fyrstur í Skálholti. Endurreisn Skálholtsstaðar hófst á 6. áratugnum. Hefur þar verið reist dómkirkja og þar er kirkjuleg menningar- og fræðslustofnun.