Þingeyrar

Þingeyrar, mesta og söguríkasta höfuðból Húnavatnssýslu. Ein mesta jörð á landinu, engjalönd, afréttir, laxveiði og selveiði. Þar er steinkirkja sem Ásgeir Einarsson alþingismaður lét reisa 1864–65. Er margt ágætra gripa í kirkjunni. Á Þingeyrum var þingstaður til forna og þar sett fyrsta klaustur á Íslandi 1133 og varð það eitt helsta menntasetur á landinu og sagnaritun meiri en annars staðar. Fjölmargir þjóðkunnir menn og héraðshöfðingjar hafa setið á Þingeyrum.