Þvottárskriður

Hvalnesskriður og Þvottárskriður liggja milli Lóns og Álftafjarðar. Þær leistu af hólmi veginn yfir Lónsheiði. Þær eru ruddar í lausar malarskriður og því er nokkuð um smá steinhrun í þeim, einkum í miklum rigningum og hvassviðri. Sveitarfélags– og sýslumörk eru um Krossanesfjall og Hvalnesskriður.