Undirfell

Undirfell (Undornfell), kirkjustaður og fyrrum prestssetur. Síðastur prestur Hjörleifur Einarsson (1831–1910), faðir Einars H. Kvaran (1859– 1938). Þar er fæddur Þórarinn B. Þorláksson listmálari (1867–1924). Á Undirfelli var fyrsti vísir að kvennaskóla Húnvetninga rekinn 1879–83.