Víðidalstunga, kirkjustaður, höfuðból að fornu og nýju, í tungu milli Fitjár og Víðidalsár, blasir við vegfarendum frá vegamótum Víðidalsvegar. Ættaróðal Vídalínsættar, var jörðin í eign ættarinnar frá því á 15.öld fram um 1900. Kunnastur ábúandi þar Páll Jónsson Vídalín (1667–1727), lögmaður, skáld og skólameistari, var ásamt Árna Magnússyni höfundur Jarðabókarinnar 1702–12. Mikill framkvæmdamaður, vottar enn fyrir akurgerðum sem sagt er að hann léti gera. Flateyjarbók er talin skrifuð í klaustrinu á Þingeyrum, stærsta íslenska skinnbókin sem til er. Rituð fyrir Jón Hákonarson bónda í Víðidalstungu.