Virkishóll

Flugumýri, kirkju­staður og höfuð­ból að fornu og nýju, nefndur eftir meri Þóris­ dúfunefs, á land­­námstíma. Þar bjó Gissur jarl Þor­valds­son um skeið og varð þá Flugu­mýrar­brenna 1253 er­ fjendur hans hugðust ná lífi hans. Hann komst undan með því að fela sig í sýrukeri, en hálfur þriðji tugur manna fórst í brennunni. Á Flugumýri voru haldnar prestastefnur Hóla­bisk­ups­­dæmis. Kvennaskóli var á Flugumýri 1880–82. Í kirkju­garð­in­um er legsteinn yfir Jóni Espólín sýslumanni og sagnaritara. Virkishóll heitir þar, er að líkindum frá Sturlungaöld. Á Flugumýri hefur um langt árabil verið rekið hrossaræktarbú en þaðan er hinn landsþekkti gæðingur Ófeigur 882.