Meðalfell, landnámsjörð og fornt höfuðból undir samnefndu felli. Þar bjó um langt skeið Magnús Ólafsson (1728–1800), lögmaður, bróðir Eggerts Ólafssonar. Sonur hans var Finnur Magnússon prófessor (1781–1847).
Í Meðalfellsvatni er veiði. Sumarbústaðahverfi er við vatnið.