Selárdalur, nyrstur þeirra þriggja dala er ganga upp frá Vopnafirði, rúmlega 30 km langur að Mælifelli, 822 m háu. Grunnur dalur, enda lágar heiðar og hálsar báðum megin. Um hann rennur Selá, góð veiðiá. 6–7 km frá þjóðveginum er Selárfoss, laxgengur og nokkru neðar er jarðhiti og þar er sundlaug Vopnfirðinga sem af mörgum er talin rómantískasta laug landsins því í henni er ekkert rafmagn og þegar skyggja tekur er laugin lýst upp af tunglskini, norðurljósum og stjörnubjörtum himni. Innandyra klæðir fólk sig úr og í við kertaljós. Nú einn bær í byggð.