Seljalandsfoss, 60 m, einn hæsti og fegursti foss landsins, er í Seljalandsá, skammt sunnan Gljúfurár. Klettarnir sem Seljalandsfoss fellur fram af eru gamlir sjávarklettar.
Gengt er bak við fossinn og göngubrú er á gömlu brúarstæði yfir ána við fossinn.
Fossinn er flóðlýstur á kvöldin.