Bakkagerði, kauptún við Borgarfjörð. Borgarfjarðarhreppur nær yfir Njarðvík, Borgarfjörð, víkurnar sunnan Borgarfjarðar og Loðmundarfjörð. 1. jan. 2012 voru 129 íbúar í hreppnum, þar af 85 í Bakkagerði. Verslunarhús var reist þar 1894, löggiltur verslunarstaður ári seinna. Aðalatvinnuvegir; smábátaútgerð, fiskverkun, sauðfjárbúskapur og steinsmiðja. Á Bakkagerði er kirkja og í henni fögur altaristafla, frá 1914, eftir Jóhannes S. Kjarval sem sýnir Krist flytja fjallræðuna í borgfirsku landslagi. Stendur Kristur á Álfaborg en Dyrfjöll eru í baksýn. Fyrirtækið Álfasteinn býr til muni úr steinaríkinu.