Drápuhlíðarfjall, 527 m, litauðugt, sérkennilegt. Í því er bæði basalt og líparít. Surtarbrandur milli blágrýtislaga og steingerðir trjábolir. Mikið um brennisteinskís og ýmsa sérkennilega steina, jaspis og glerhalla. Því var trúað að þar fyndist gull og þess leitað en magnið þótti lítið.