Geitavík, bær við samnefnda vík. Í Geitavík ólst Jóhannes S. Kjarval listmálari (1885–1972) upp og þar reistu sveitungarnir honum minnisvarða á 100 ára afmæli hans 1985. Kjarval málaði margt mynda úr Borgarfirði og víða bregður Dyrfjöllum fyrir í myndum hans.