Hrafnkelsdalur, afdalur frá Jökuldal, alllangur og breiður, víða grösugur og víðikjarr. Jarðhiti á nokkrum stöðum. Fyrrum voru þar nokkrir bæir, nú aðeins tveir, Vaðbrekka og Aðalból. Þar hafa fundist mannvistarleifar frá söguöld og hefur Sveinbjörn Rafnsson prófessor skrifað um þær bókina Byggðarleifar í Hrafnkelsdal og á Brúardölum.