Öxnadalur, djúpur dalur og þröngur, umlukinn háum fjöllum, um 35 km langur. Um hann fellur Öxnadalsá. Nálægt miðjum dal gengur hólagirðing yfir hann þveran. Skriðuhætt er víða. Árið 1952 hóf Skógræktarfélag Eyfirðinga skógrækt þar. Þekkt er kvæði Hannesar Hafstein um Jónas Hallgrímsson sem hefst svo: „Þar sem háir hólar/hálfan dalinn fylla.“