Sleggjubeina, árspræna vestast í Breiðuvík, fellur í djúpu, nær hringlaga gili, Rauðfeldargjá stundum nefnd Rauðfeldsgjá í Botnafjalli.
Megin gjáin er há, grunn og mjög mikilfengleg. Hægt er að ganga langt inn í gjána síðari hluta sumars, þegar snjóa hefur leyst, en betra er að vera í vaðstígvélum og regnfatnaði vegna úða úr ánni.
Ljósfæri eru óþörf því ofanbirta er í gjánni.
Á austurbakka Sleggjubeinu eru tóttir vallgrónar af Grímsstöðum þar sem Sigurður Breiðfjörð (1798–1846) bjó um hríð, „kvað þar bögur sínar og spann gull tungunnar í örbirgðinni“ (Helgi Hjörvar).