Reykhólasveit, frá Geiradal að Múlaá í Þorskafirði, nær yfir Króksfjörð að nokkru, Borgarland, Berufjörð, Reykjanes og Þorskafjörð. Bæjarhúsin í Börmum voru endurbyggð 1971–1974 og var þá eini upprunalegi torfbærinn á Vestfjörðum sem enn stóð uppi. Á bænum Grund í Reykhólasveit féll snjóflóð á útihúsin 18. janúar 1995 og fórst bóndinn á bænum en syni hans var bjargað eftir 12 tíma.