Skarfanes, eyðibýli, eign Skógræktar ríkisins. Alfriðað frá 1941. Þangað liggur jeppaslóð frá Þjófafossi og Skarði. Þar er allmikill skógur en mestur í Lambhaga við Þjórsá og fer hann vaxandi síðan friðað var. Alls eru 1100 hektarar innan girðingar.