Stífla, megindalur Austur–Fljóta, dregur nafn af hólagirðingu yfir þveran garðinn er nefnast Stífluhólar og eru þeir framhlaup úr fjallinu austan dalsins. Nefnist Strengur þar fyrir ofan. Var gerð stífla við hólana þegar Skeiðsfoss var virkjaður og á þá eftirfarandi vísa eftir Pál Pálsson frá Knappsstöðum varla lengur við en rithátturinn vitnar um framburð þar um slóðir á sínum tíma, þar sem hart er kveðið að með b–hljóði:
Gróa fíblar fróni á,
fæst af ríblegt heyið.
En hve líblegt er að sjá
ofan í Stíblu greyið.