Stóra–Laxá, bergvatnsá sem kemur upp sunnan Kerlingarfjalla, laxveiðiá. Fellur í miklu gljúfri í óbyggðinni. Veiðimannavegur liggur upp undir gljúfrin, framhjá Laxárdal. Auk þess afréttarvegur inn hjá Tungufelli austur að Laxá efst með gljúfrunum (línuvegur).