Svartsengi, grasflatir norðan undir Svartsengisfelli, sem einnig er kallað Sýlingafell, norður frá Grindavík. Við Svartsengi er mikið háhitasvæði og þaðan liggur hitaveita um öll Suðurnes, tekin í notkun 1976. Varmaorkuver, Hitaveita Suðurnesja, það sem kennt er við Svartsengi stendur norðan Þorbjarnarfells.