Sveifluháls, móbergshryggur hæstur 397 m. Fellur með bröttum hömrum niður að Kleifarvatni. Einnig nefndur Austurháls.
Við suðurenda hálsins er einstakur hnjúkur Mælifell, 228 m.
Gömul þjóðleið frá Krýsuvík til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur lá yfir Sveifluháls um Ketilstíg, sem kenndur er við Ketil, djúpa og bratta kvos vestan í hálsinum.