Tungufell, kirkjustaður, sá bær á Suðurlandi sem fjærst er sjó. Styst til sjávar í Hvalfjörð, um 58 km. Þar var timburkirkja reist árið 1856. Altari, prédikunarstóll og umbúnaður altaristöflunnar er eftir Ófeig Jónsson frá Heiðabæ í Þingvallasveit og voru þeir gripir í torfkirkju sem áður stóð í Tungufelli og Ófeigur smíðaði. Klukkur kirkjunnar eru með rómönsku lagi og eru með allra elstu kirkjuklukkum landsins. Hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands frá 1987. Í Þjóðminjasafni er varðveittur mikill kjörgripur úr kirkjunni, smeltur kross frá 13. öld. Frá Tungufelli liggur illfær vegur inn á Leppistungur og á Kerlingarfjallaveg við Jökulfall (Jökulkvísl). Af þessum vegi liggur brautin austur að Laxárgljúfrum. Ef ekið er í 5,5 km áfram eftir slóða frá Tungufelli er komið að gönguleið sunnan megin við Gullfoss.