Upsir, fyrir ofan Dalvík, prestssetur til 1851 og kirkjustaður til skamms tíma, en kirkjan var flutt til Dalvíkur. Kór kirkjunnar stendur enn sem kapella í Upsakirkjugarði. Þar fæddist Bjarni Pálsson (1719–79) landlæknir. Upp af bænum er hnjúkurinn Upsi.