Laugarvatn

Laugarvatn, vinsæll áningastaður ferðamanna og rómaður sumardvalarstaður. Í þéttbýliskjarnanum má m.a finna hótel, listagallerí, sundlaug, Laugarvatn Fontana, bensínstöð og veitingahús.

Laugarvatn er stöðuvatn sem er 2.14m2 er ylvolgt á allstóru svæði og víða má finna heitar uppsprettur í vatninu og á vatnsbakkanum. Vatnið er grunnt og hafa heimamenn og gestir notað Laugarvatn sem baðstað í fjölda ára. Sagan segir að sumir höfðingjar á Þingvöllum hafi ekki viljað skírast í köldu vatni Þingvalla árið 1000 við kristnitökuna heldur kosið heitar laugar að Laugarvanti.