Torfahlaup

Torfahlaup, þröngt gljúfur sem Markarfljót fellur um. Sagan segir að piltur að nafni Torfi hafi stokkið yfir það með stúlku sína á bakinu. Voru þau á flótta undan ættingjum stúlkunnar sem vildu Torfa feigan.