Glóðafeykir, 990 m, tilkomumikið fjall, bratt og burstamyndað upp af Flugumýri með klettum hið efra.
Sagt er að Helga Sigurðardóttir, fylgikona Jóns Arasonar biskups, hafi hafst þar við að fjallabaki sumarið eftir fall hans, meðan dönsk herskip voru við Norðurland.