Hraun, í Öxnadal er vestan ár. Þar fæddist Jónas Hallgrímsson (1807–45) skáld. Minningarstofa hans var opnuð þegar 200 ár voru liðin frá fæðingu listaskáldsins góða. Þar verður rannsóknaraðstaða fyrir fræðafólk í bókmenntum, náttúruvísindum og stjórnmálum. Í landi Hrauns er einnig fólkvangur sem nefndur hefur verið Jónasarvangur. Upp af Hrauni er dalverpi er heitir Vatnsdalur, þar er Hraunsvatn, 50–60m djúpt veiðivatn. Í því drukknaði síra Hallgrímur faðir Jónasar skálds.