Kvíabekkur, kirkjustaður og fyrrum prestssetur til 1914. Þar setti Lárentíus Hólabiskup prestaspítala um 1330, eins konar elliheimili uppgjafapresta. Frá Kvíabekk eru ættaðir nokkrir stiftamtmenn, m.a. Þorkell Fjeldsted (1740–1796).