Leyningshólar, framhlaup og jökulöldur. Þar eru allmiklar skógartorfur, hinar einu skógarleifar sem kallast geta því nafni í Eyjafirði. Friðaðir 1938–39 og nokkuð verið ræktað þar. Tjarnagerðisvatn neðan við hólana. Þar hafa bílstjórar á Akureyri reist sumarbústað og unnið að skógrækt. Völvuleiði fornt er norðan við vatnið.