Svartárkot, innsti bær í Bárðardal að austan, uppi á heiðinni við jaðar Ódáðahrauns 400 m yfir sjávarmáli. Við bæinn allstórt stöðuvatn, Svartárvatn, gott veiðivatn, en Einar Friðriksson bóndi þar seint á 19. öld flutti þangað silungshrogn úr Mývatni og kom þannig upp veiðinni. Var það þá einsdæmi á Íslandi. Úr vatninu fellur Svartá og rennur Suðurá í hana nokkru neðar. Svartá rennur í Skjálfandafljót nokkru fyrir norðan Víðiker, í henni er Ullarfoss. Frá Svartárkoti liggur slóð inn að Dyngjufjöllum. Útsýn frá Svartárkoti fágætlega mikil og víð.