Brekknaheiði, norðurhluti heiðasvæðis þess milli Langanesstrandar og Þistilfjarðar, sem fyrrum kallaðist Helkunduheiði. Skiptast þar á lágir ásar og mýraflóar með smávötnum og tjörnum, hæð víðast undir 200 m. Á Helkunduheiði eru sýslumörk Þingeyjar– og Múlasýslna og þar voru hin fornu mörk fjórðunga og biskupsdæma. Vegurinn er hæst í 160 m hæð.