Brúarfoss, bær á syðri bakka Hítarár, við þjóðveginn. Samnefndur foss í ánni hjá bænum. Brú er þar yfir Hítará og veiðimannahús og sumarbústaður. Jóhannes Jósefsson (1883–1967) glímukappi og veitingamaður, Jóhannes á Borg, hafði þar sumarsetur um margra ára skeið. Sögn er til um að áður fyrr hafi steinbogi verið á Hítará hjá Brúarfossi. Eitt sinn hafi dauðadæmdur sakamaður flúið af aftökustað og yfir bogann en um leið og hann var sloppinn yfir steyptist boginn í ána. Átti sá atburður að sanna sakleysi hans. Fagrir og sérkennilegir skessukatlar eru við Brúarfoss. Skammt ofan við Brúarfoss eru Grettisstillur, stórir og smáir steinar er liggja næstum því í röð yfir ána, verk þeirra Grettis og Bjarnar Hídælakappa að sögn Grettissögu.