Hrútey

Goðafoss, í Skjálfandafljóti, einn af kunnustu og fríðustu fossum lands­ins. Hann er tvíklofinn og er hærri hluti hans um 15m hár. Skammt ofan við fossinn klofnar fljótið og myndar vesturkvísl þess eyju, Hrútey, og liggur hún vestan að Goðafossi. Sagt er að fossinn dragi nafn af því að Þorgeir Ljósvetn­inga­goði hafi kastað í hann goðamyndum sínum eftir kristni­tökuna. Skammt neðan við fossinn er Hansensgat í gegnum hraunlag. Dregur nafn af því að í það féll Hansen lyfsali á Akureyri og sakaði ekki. Um það orti Kristján Fjallaskáld kvæðið Undirheimaförina. Hraunið við fossana, Bárðardalshraun, rann frá Trölladyngju fyrir meira en 7000 árum síðan í allt að 100 km frá gígnum.