Strandarkirkja

Strandarkirkja, í Sel­vogi, einu minjarn­ar um höf­uð­bólið Strönd, þar sem um skeið bjuggu rík­ustu og valda­mestu höfð­ingj­ar lands­ins.

Á Strand­ar­kirkju er mik­ill átrún­að­ur og reyn­ist hún góð til áheita, enda af því ein auð­ug­asta kirkja lands­ins.

Núverandi kirkja er frá 1888. Hún var endurvígð eftir endurbætur 14. júlí 1968 og enn endurbætt og endurvígð 13. okt. 1996.

Vorið 1950 var reistur minnisvarði um kraftaverkið í Engils­vík norðvestan við kirkjuna. Er það standmynd á stalli eftir Gunn­fríði Jónsdóttur myndhöggvara og nefnist Landsýn. Sýnir hún hvítklædda konu sem heldur á skínandi krossmarki og bendir sjómönnum í lífsháska inn í Engilsvík.

Þjónustuhús var reist nálægt kirkjunni 1988. Í jarðhýsi er snyrtiaðstaða fyrir gesti og gangandi.

Umhverfi kirkjunnar er allt til mikillar fyrirmyndar.