Kvísker, austasti bær í Öræfum. Þaðan fengu menn löngum fylgd yfir Breiðamerkursand. Útsýn fögur, sauðland gott, en slægjur litlar. Skógarkjarr. Þar er eini fundarstaður glitrósar hér á landi. Frá Kvískerjum gekk Sveinn Pálsson fyrstur manna á Öræfajökul 1794. Kvískerjabræður, sjálflærðir náttúrufræðingar eru víðkunnir fyrir rannsóknir sínar. Þegar gos varð í Öræfajökli 1362 lagðist byggð á þessu svæði í eyði en byggðist upp nokkrum árum síðar upp við fjöllin. Eftir það hefur byggð haldist. Öskulag í túni Kvískerja er jafnvel talið frá tíð Þorgerðar landnámskonu og Þórðar Illuga. Hægt er að lesa um jörðina í Kvískerjabók.